8.5.2007 | 11:43
að niðurlotum kominn
Úff ég er að leka niður úr þreytu og langar heim að sofa ...þrátt fyrir safapressuna hennar Ellu og alla ávextina í morgunn þá er ég að deyja úr þreytu,hvað á maður að gera í svona ?Ég ætla að hífa mig upp á afturlöppunum og drullast í stafagöngu í boði moggans:)Lek þá bara niður einhverstaðar á leiðinni og sef til kl .fimm fer þá heim að sofa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2007 | 11:30
sófi og hillur að hætti Ikea
Við fórum í Ikea í gær að kaupa okkur sófa og hillur í nýja sjónverpsherbergið okkar,þar sem við stóðum hjá afgreiðslumanninum með hjartað í buxunum hvort þetta sem við ætluðum að kaupa væri til eða ekki (það er yfirleitt ekki neitt til sem ég ætla að kaupa mér í Ikea )þá var par þarna á miðjum aldri að velja sér sófa og var farið að hnakk rífast um hvernig sófin ætti að líta út,kallin vildi fá bláan sófa en kellan rauðan sófa og þau voru greinilga mjög ósammála um þetta því að kallin vældi þessi lifandi ósköp yfir því hvað kellan væri alltaf vond við sig og sí skammandi sig í tíma og ótíma og hún alveg drullupirruð yfir kallómyndinni sem sat þarna vælandi og grenjandi (frekar fyndið)Ég nefnilega fór með því hugarfari í Ikea að ég ætlaði sko algjörlega að ráða hvernig sófa ég ætlaði að fá og hvernig liturinn ætti að vera Ási er nefnilega með svo ljótan smekk að mínu mati:):)og ég ætlaði lika að ráða hvernig hillur væru verslaðar.............en vitið menn sófin sem ég vildi fá var ekki til og ekki væntalegur aftur og ég gat ekki ákveðið hvernig hillur ég vildi heldur.............þannig við versluðum bláan hornsófa í staðinn fyrir ljósan sem ég vildi fá og Ási valdi hillurnar ,í ljós kom að hann hefur ágætan smekk þessi elska ef hann fær að ráða ,sem er stundum:)Nú er bara að spíta í lófan og setja þetta saman ,Ási lendir örugglega í því þar sem gleymdist að setja í mig þolinmæði ég væri vís til að brjóta allt draslið ef ég fer að gera þetta , best að sleppa því :)Þannig að ég spíti bara í lófan á Ása :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2007 | 14:04
klipping dauðans
Ég fór í klippingu í morgunn sem er nú ekki frásögufærandi nema þetta var svo dýrt að ég er í sjokki!!!Ég var látin borga 15,500,-fyrir klippingu sem var eiginlega bara að laga hárið smá ,strípur og blástur sem hefi alveg mátt sleppa,og ekki nóg með það þá keypti ég sjampó ,næringu og froðu þetta eru að vísu bestu efni sem ég hef prófað ,þetta kostaði 3,500,-samtals 19000,-er þetta hægt??Ég læt aldrei klippa mig aftur með þessu áframhaldi verð með sítt hár niður á hæla frekar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2007 | 13:34
:)
Steinar bróðir, Ragnhildur mákona og Sverrir sonur þeirra og hundsrassgatið komu í mat til okkar í gærkvöldi.Sverrir er 15.ára og ég hef ekki séð hann frekar lengi þar sem þau búa á Akureyri og er krakkin svona fjallmyndarlegur dökkhærður með svart hár og mjög skemmtilegur ,hann hefur það nú bara frá frænku sinni:)Við Steinar höfum mjög sérstakan húmor og hlæjum að fáránlegurm hlutum og greinilega lætur hann ekki oft eins og hálfviti ,nema þegar við hittumst þá er látið eins og við séum á full . Sverrir fallegi frændi minn var ekki alveg að skilja hvernig fólk á fertugsaldri getur látið svona þannig að hann var frekar hissa í framan í gærkvöldi en ég held að hann hafi bara skemmt sér vel.Það er eitt sem er alveg nauðsynlegt í þessu lífi ,það er að borða góðan mat og þekkja klikkað og skemmtilegt fólk sem maður getur hlegið með ......það er allvegna lífsnausynlegt fyrir mig.Munið svo bara að hlægja nógu andskoti mikið :):)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2007 | 15:30
Austurríki
já já það var frábært í Austurríki,fyrir utan flensu sem hrjáði okkur þessa viku sem við vorum þarna.Ási var veikur daginn áður en við fórum ,Palli vaknaði veikur daginn eftir að við komum,Sigrún Ása var veik á 3.ja degi og ég veiktist á sjötta degi :)En þetta var samt svo skemmtilegt að ég fer örugglega aftur að ári.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2007 | 11:34
Skíði
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2007 | 17:25
Húsið
Við erum að vera búin með allt sem við ætluðum að gera við húsið .
1.Skipta um þak:búið
2.Smíða pall :búið
3.gera herbergi úr geymslunni:búið
4.kaupa nýjar gardínur í allt húsið:búið
5.setja rafmagn í bílskúrinn :eftir
6.breyta jeppanum :búið
7.kaup nýtt grill:búið
Þetta er búið að kosta ,pening rifrildi ,og leiðindi vonandi fer þetta að taka enda svo að við getum farið að lifa eðlilegu lifi aftur.Ótrúlegt hvað svona framkvæmdir geta teki á sambandið ef fólk er ekki sammála um allt.En við erum að fara til Austurríkis á skíði,þetta hlýtur að vera allt komið þá og við komin með eðlilega geðheilsu þannig að við getum skíða eins og Stenmark niður fjallahlíðarnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2007 | 15:49
svo ég missi ekki þessa bloggsíðu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.7.2006 | 16:09
Rigning
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.7.2006 | 00:51
ohhhhhh
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)