Bókin

Mikið rosalega finnst mér bókin hann Sigmundar Ernis,Barn að eilifu vel
skrifuð og skemmtileg að lesa.Hafi nú ekki mikla trú á henni eða því að
vera skrifa bók um manns nánustu mál,en hann gerir þetta svo
skemmtilega að ég get ekki hætt að lesa þegar ég byrja.

flugdrekahlauparinn

Bókin Flugdekahlaupainn er bók sem allir verða að lesa.Rómantíks ástar og raunarsaga með hræðilegu ívafi,svo góð að það er ömurlegt þegar hún er búin.


veikindi

kaupmannahofn.jpg

Það er ekkert leiðinlegra en að vera veikur.Við vinkonurnar fórum til KÖben þann  12.mai og leigðum okkur rosalega flotta íbúð 160 fermetra,við vorum 6 saman vinkonur úr barnaskóla.Þetta var vel heppnuð ferð í alla staði,nema að Kolla vinkona veiktist á sunnudeginum og var hóstandi eins og gamall berklaskjúklingur:)Nema hvað á mánudeginum vaknaði ég hóstandi og flögrut,komin með þessa lika rosalegu pest og er búin að vera heima í viku.ojojojojojojoo.

 


rússneska þakið

jæja nú er þakið loksins komið á ,hjúkk þvílikt vesen.Þetta byrjaði
allt á því að nágrannni okkar ætlaði að skipta um þak og kom með þá
tillögu að við mundum gera þetta saman ,þar sem þurfti að leygja gám og
vesen og við erum með aspest þak sem er algjört eiturefni og fínt að
losna við það.Nema hvað þá fengum við tilboð í þetta verk frá tveimur
rússum sem ætluðu að gera þetta fyrir 180,000,-hvort þak.Þeir hófust
handa hjá nágrönnunum fyrst og gekk mjög vel,kom ekki dropi úr lofti og
ekki 1,vindhviða,þannig að þeir voru í 2.vikur að dúlla sér í þessu hjá
þeim.jú jú svo er komið að okkar þaki ,þeir byrjuðu að losa þakið að
hluta og tóku svo plöturnar af ,nema hvað það fór auðvita að snjóa í
miðju kafi og þakið opið þannig að það snjóði inn á loftið hjá
okkur.þeir létu þetta ekki stoppa sig og héldu bara áfram og vonuðust
greinilega til að það mundi hætta að snjóa sem gerðist auðvita
ekki.Heldu fór að rigna lika þannig að nú urðu þeir að hætta og plasta
þakið svo að það læki ekki allt í gegn,þetta var semsagt á mánudegi og
svo bara ringdi og ringdi ,á þriðjudag og miðvikudag lika þannig að
okkur leist ekkert á blikuna.Veðurspáin á miðvikudeginum var 25,metrar
á sek þannig að þetta leit ekki vel út.Ási var búin að vera allan
miðvikudaginn að festa plastið þannig að það fyki ekki af og allt færi
að leka .Við héldum að við værum örugg og ætluðum að fara að sofa ,nema
hvað þakið fauk af þegar við ætluðum að leggjast í rúmið,með þvílikum
hávaða að það hálfa hefði verið yfirdrifið.Rússa hálfvitarnir gleymdu
að segja okkur að þeir voru búin að losa helmingin af þakinu og auðvita
fauk það af.Þannig að aðfara nótt fimmtudags var Ási uppá þaki að festa
það niður aftur svo að allt færi ekki til andskotans.Við þurftum að
kalla út her manna til þess að hjálpa okkur við að setja nýja þakið
á,því að sunnudeginum var spáð rigningu og það tókst sem betur fer að
klára það.Ási ætlaði að reka rússana sem betur fer gerði hann það ekki
,þetta eru duglegir menn þótt þeir séu hálfvitar að gleyma því að segja
okkur frá lausa þakinu:)Hvað um það þetta er allt komið og okkur líður
vel núna.Þá er bara eftir að smiða pall,setja rafmagn í bílskúrinn ,búa
til sjónvarpsherbergi ,nýjar hurðar 2.nýja glugga, laga eldhús
inréttinguna :)dísess ég held að ég selji bara húsið og kaupi mér íbúð
í blokk:)

Gleði

Gleði gleði ,Komin með bloggsíðu .Skrifa meira þegar ég hef tíma

Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband