sófi og hillur að hætti Ikea

Við fórum í Ikea í gær að kaupa okkur sófa og hillur í nýja sjónverpsherbergið okkar,þar sem við stóðum hjá afgreiðslumanninum með hjartað í buxunum hvort þetta sem við ætluðum að kaupa væri til eða ekki (það er yfirleitt ekki neitt til sem ég ætla að kaupa mér í Ikea )þá var par þarna á miðjum aldri að velja sér sófa og var farið að hnakk rífast um hvernig sófin ætti að líta út,kallin vildi fá bláan sófa en kellan rauðan sófa og þau voru greinilga mjög ósammála um þetta því að kallin vældi þessi lifandi ósköp yfir því hvað kellan væri alltaf vond við sig og sí skammandi sig í tíma og ótíma og hún alveg drullupirruð yfir kallómyndinni sem sat þarna vælandi og grenjandi (frekar fyndið)Ég nefnilega fór með því hugarfari í Ikea að ég ætlaði sko algjörlega að  ráða hvernig sófa ég ætlaði að fá og hvernig liturinn ætti að vera Ási er nefnilega með svo ljótan smekk að mínu mati:):)og ég ætlaði lika að ráða hvernig hillur væru verslaðar.............en vitið menn sófin sem ég vildi fá var ekki til og ekki væntalegur aftur og ég gat ekki ákveðið hvernig hillur ég vildi heldur.............þannig við versluðum bláan hornsófa í staðinn fyrir ljósan sem ég vildi fá og Ási valdi hillurnar ,í ljós kom að hann hefur ágætan smekk þessi elska ef hann fær að ráða ,sem er stundum:)Nú er bara að spíta í lófan og setja þetta saman ,Ási lendir örugglega í því þar sem gleymdist að setja í mig þolinmæði ég  væri vís til að brjóta allt draslið ef ég fer að gera þetta , best að sleppa því :)Þannig að ég spíti bara í lófan á Ása :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband